1. Teljið upp allar mögulegar og ómögulegar lygar í sögunni.
- Allir ljúga um allt. Til dæmis er lýsing Baldurs á foreldrum sínum ekki trúverðug og sögumaðurinn lýgur að Baldri um að hafa verið í Mosó. Frændi sögumannsins laug svo líka að honum hvað varðar gjörðir sínar um kvöldið.
2. Hver lýgur mest? Er einhver sem lýgur ekkert í sögunni?
- Foreldrar Baldurs ljúga um hvar þau voru, með hverjum þau voru og hverja þau sáu. Ég krýni þau lygakongunshjón sögunnar. Það er spurning hvort einhver ljúgi ekkert í sögunni. Lýgur einhver einhvern tíma yfir höfuð?
3. Hver er alvarlegasta lygin?
- Ég veit ekki hvort einhver staðhæfing í þessari sögu sé lygi yfir höfuð en ef einhver laug til að hylja glæp, þá finnst mér sú lygi alvarlegust.
4. Trúverðugasta persónan?
- Krakkinn sem hangir inn í herbergi allan tíman er líklegast trúverðugasta persóna sögunnar.
5. Hver er hin raunverulega saga? Er hún til?
- Já, eitthvað hlýtur að hafa gerst. Ég held að sögumaður hafi tekið bensín í Mosó og verið svo skakkur að hann man ekki eftir að hafa séð foreldra Baldurs. Baldri vantar gleraugu, hann heldur að foreldrar sínir séu eitthvað allt annað fólk og foreldrarnir voru bara heima að spila félagsvist.
6. Hvert er þema sögunnar?
- Lygar og minnið.
7. Póstmódernísk einkenni?
- Enginn rökrétt atburðarrás. Atburðarrás sögunnar gæti gerst en samt gæti hún ekki gerst. Ósamræmi og endalausir lygar gera frásögnina að algjörum hrærigraut.
Sjálfstætt fólk
föstudagur, 29. nóvember 2013
Hendi Krists
Morgunsólin kyssti Grafarvoginn einn svalan vordag. Vogurinn glitraði, börn á leið í skóla. Örfáir bílar rúlluðu hljótt á malbikinu. Í sundlaug Grafarvogs komu lág hljóð úr bláu rennibrautinni: ,,Urgghh." Hávaxinn, feitlaginn maður klöngraðist hægt út úr bláu rennibrautinni. ,,Jæja..." Hann renndi upp buxnaklaufinni og reyndi að laga stutta, brúna hárið. Hann hoppaði að einstakri fimi yfir grindverkið og hóf leit af mat. Hann gekk sína vanalegu leið um kirkjugarðinn, í átt að Spönginni. Hann hreinsaði upp allt rusl á leiðinni. ,,Hvað á þetta að þýða? Þrífur enginn hérna?" hugsaði hann upphátt. Hann greip alla plastpoka, áldósir og skrapaði tyggjó af götunni. ,,Hérna, kallinn minn," sagði hann og rétti steininum í vasa sínum eitt tyggjó. Steinninn sýndi þakklæti sitt með lágu mali. Hann fór sem stormsveipur yfir öll beð, legsteina og grafhýsi. Hann vissi ekki að hann væri ekki einn.
Stuttur og feitur maður í leðurjakka stóð hjá einum legsteini. Hann gekk nær og nær hávaxna manninum með stutta, brúna hárið. Maðurinn í leðurjakkanum nam staðar um fimm metrum frá hávaxna manninum og kallaði: ,,Kristmundur Sverrir?" Eftir langa þögn kom Kristmundur út úr sér: ,,...Uuu, já. Hver ert þú?" Maðurinn í leðurjakkanum hló lágt og dró sólgleraugun af nefinu. ,,Ég er sá sem ætlar að gera þig að hetju."
Kristmundur fór með þessum dularfulla manni inn í einkaþotuna hans. ,,Hver ertu?" Kristmundur spurði og leit í kringum sig, það rann gull niður eftir gangi flugvélarinnar. ,,Ég er fyrrverandi leikari sem hætti að leika eftir að ég fann upp Va-poo-rize, efni sem lætur hundaskít hverfa. Ég er Jack Black!" ,,Okei, kúl," sagði Kristmundur og bætti svo við: ,,Hvert erum við að fara?" ,,Hvernig lýst þér á að fara í snöggt sólbað í Miami, Flórída?" sagði Jack og þotan lækkaði flugið.
Þotan lenti í Flórída og Jack stökk út, teygði úr sér og sneri sér svo snöggt að Kristmundi. ,,Við þurfum að tala saman, hefur þú gaman af körfubolta?" ,,Urgh, ég hata íþróttir!" ,,Ojæja, það er samt ekki eins og þú hafir val um það, við erum að fara á körfuboltaleik!" Kristmundur klöngraðist klaufalega inn í hvíta limmósíu og faratækið þaut af stað. Steinninn í vasa Kristmundar vældi af hræðslu.
Svo virtist sem allir íbúar Miami væru komnir til að horfa á leikinn, svo mikið var af fólki. Jack togaði í nokkra spotta og þeir félagar skutust framhjá öllu fólkinu, framhjá miðasölunni og öryggisgæslunni, alveg inn að vellinum sjálfum. Jack settist niður í þriðju röð en Kristmundur fyrir neðan hann í annarri röð. ,,Af hverju sit ég ekki við hliðina á þér?" spurði Kristmundur. ,,Hann má ekki sjá að ég sé með neinum," sagði Jack sem var aftur búinn að setja upp sólgleraugun. ,,Hver?" spurði Kristmundur og sneri sér að Jack. ,,Ekki horfa á mig!" Jack leit undan og vonaði að Hann hefði ekki séð þá. ,,Ég ætla að þykjast tala í símann og þú ætlar að hlusta, ekki segja neitt bara að hlusta, skilið?" Kristmundur kinkaði lítillega kolli. ,,Gott, gott," sagði Jack og tók upp símann. ,,Þetta sem ég er að fara að segja þér gæti reynst þér erfitt að skilja í fyrstu en ég reyni mitt besta að útskýra. Við búum báðir yfir fornum kröftum, kröftum Krists. Þessir kraftar hafa fyglt mannkyninu síðan Kristur lést á krossinum. Ég bý yfir rödd Krist, ég get látið fólk gera það sem það ég vil að það geri. Til dæmis náði ég þér tiltölulega auðveldlega inn í þotuna mína. Einnig get ég látið fólk frjósa með því að kalla nöfn ofmetinna kvikmynda á það. Þú, Kristmundur, býrð yfir hendi Krists. Þú getur lífgað við dauða hluti með snertingunni einni, til dæmis ert þú með lifandi stein i vasanum!" Kristmundur trúði ekki sínum eigin eyrum. Loksins, loksins skýring á því hvers vegna hann var svona skringilegur. Hann ætlaði að spyrja hversvegna Jack þyrfti á honum að halda en áttaði sig svo á fyrirmælum Jacks. Jack hélt áfram: ,,Ég hef lengi leitað af þér, en sérstaklega þarf ég þig núna. Lionel Messi, sem býr yfir fæti Krists, hefur verið rænt af Honum og við verðum að bjarga Messi áður en Hann nær máttinum. "Hver er Hann?" myndir þú kannski spyrja. Hann er illur og sækist eftir öllum máttum Krists. Hann heitir Kevin Durant." Kristmundi fannst nafnið heldur kunnulegt, hann leit í kring um sig og viti menn Durant var inn á vellinum klæddur í treyju Oklahoma City Thunder. ,,En, ef hann er hér, afhverju erum við þá hér líka?" spurði Kristmundur. Jack Black skorti orð, hann vissi það ekki sjálfur. ,,Góður punktur!" Jack og Kristmundur féllu niður í holu í gólfinu og fluttust aftur út á flugvöll. ,,Til Oklahoma City!" gargaði Jack á flugstjórann.
Heima hjá Durant í Oklahoma var lítið um manninn, enda allt hans fólk í Miami. Jack og Kristmundur gengu að hliðinu. Það var stórt og mikið en Jack vissi nákvæmlega hvað væri til ráða. ,,Kristmundur," hvíslaði Jack. ,,Komdu við hliðið og hugsaðu um Afríku." ,,Afríku?" ,,Já, gerðu það bara!" Kristmundur rétti fram hendurnar og hugsaði um Afríku. Hliðið var lint, byrjaði að hreyfa sig. Allir rimlarnir breyttust í snáka og skriðu í burtu að hræðslu. ,,Vel af sér vikið," sagði Jack og klappaði Kristmundi á öxlina. ,,Leiðin héðan ætti að vera greið niður í kjallara." Jack braut rúðu og stökk inn. Jack vissi nákvæmlega hvert hann átti að fara. ,,Hægri, vinstri, opna þessa hurð," hugsaði hann upphátt. Kristmundur elti hann og starði á þau vægast sagt skrýtnu listaverk sem voru að finna á heimili Durants. ,,Voila, eureka, bingólottó, eða hvað sem þið segið á þessari bannsettri eyju, ég hef fundið hann." Lionel Messi stóð steinrunninn í kjallarahorninu. Kristmundur gekk vandræðalega að steinstyttunni. ,,Hvað viltu að ég geri?" spurði hann svo, ráðþrota. ,,Komdu bara við hann og hugsaðu um fótbolta eða eitthvað svoleiðis." Kristmundur hristi höfuðið. ,,Ég þoli ekki íþróttir!" ,,Þú verður að reyna!" gargaði Jack og Kristmundur sá að það var stutt í að litli maðurinn myndi springa af bræði. Kristmundur kom við Lionel Messi og ímyndaði sér menn að spila fótbolta. Steinstyttan hreyfði fingurna. ,,Það er að virka, haltu áfram!" Jack Black var að deyja úr spenningi. Eftir dálitla stund braust Messi út úr steininum og tók andköf, hann var frjáls. ,,Drífum okkur héðan." Messi dreif sig á fætur og þríeykið hljóp upp stigann aðeins til að finna Kevin Durant standandi inn í stofunni. ,,Ég hittumst aftur, Jack Black." Körfuboltamaðurinn var svo stór að hann gat næstum því komið Messi fyrir í lófanum. ,,Alltaf jafnmikill heiður, Kevin," sagði Jack. Það brann eldur í augum hans, Kevin hafði fyrir 10 árum drepið foreldra hans. Durant hló að hinum aumu mönnum sem stóðu fyrir framan hann. ,,Þið sleppið ekki héðan lifandi." Jack var ekki á því að leyfa Durant að sleppa héðan lifandi heldur. Jack dró andann djúpt inn og öskraði af lífs og sálarkröftum: ,,AVATAR!" Ísklumpur vafði sig utan um risavaxinn líkama Durants og ekkert heyrðist nema dauft, fjarlægt óp körfuboltamannsins. ,,Kláraðu hann Leo," sagði Jack og byrjaði að ganga í átt að þyrlunni sem var fyrir utan. Lionel Messi tók tilhlaup og sparkaði eins fast og hann gat í ísklumpinn sem sprakk í svo marga bita að ekki var hægt að telja þá. ,,Komum," sagði Messi og þríeykið gekk út í síðdegissólina.

sunnudagur, 17. nóvember 2013
Skammtafræði
Málningardós liggur á stéttarbrúninni,
liturinn lekur út.
Ég reyni að þrífa litinn upp.
En þar sem ég hef ekkert nema heftara
gengur það frekar illa.
Núna kæmi sér vel að hafa hlustunarpípu.
---
Í fyrra erindinu er lýst ákveðum aðstæðum og ég geri mitt besta í að laga ástandið.
Í seinna erindinu held ég að hlustunarpípa sé lausn á vandamálum mínum. Ég geri mér ekki grein fyrir því að hlustunarpípa er ekkert betri en heftari í að hreinsa upp málningu. Þess vegna á maður bara að sætta sig við það sem maður hefur og vinna með það.

sunnudagur, 3. nóvember 2013
Myrkrið
Heill heimur,
ógnarstór óvissa,
umvafinn í dimma og dularfulla
slæðu.
Svo langt sem augað eygir, ekkert nema slæðan,
hinn algeri gleypir lífs og náttúru.
Það er sem allt fari, ekkert verður eftir,
ekkert sleppur.
Samt skilar slæðan öllu ósnertu.
Samt sem áður er vonarglæta,
ljós í fjarska sem færist nær.
--
Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra...
Ég var bara að horfa út um gluggan, inn í myrkrið sem blasti þar við, og púff.
Einhverjar pælingar um skammdegisþunglyndi og erfiða tíma sem allir ganga í gegnum og í lokin er ég bara að minna á að svoleiðis er bara tímabundið.
Ég leit út um gluggan og þar sem áður var Esjan og fjörðurinn og nú var ekkert nema myrkur. Þar sem ég vissi lítið um hvað annað ég gæti skrifað um henti ég í eitt dimmt myrkursljóð. Voðalega lítið annað hægt að segja.
Jón out!

Vísaðu mér veginn
Ég ligg hreyfingarlaus í malbikinu og hugsa. Það er í raun ekkert annað sem ég get gert. Gott er í veðri, heiðskýr himinn, lognið svo svakalegt að fuglarnir fljúga ekki einu sinni. Þetta er eins og góður laugardagsmorgunn, þar sem engin ástæða er til þess að fara á fætur. Þess vegna kýs ég að liggja hér um stund.
Skyndilega heyri ég létt fótatak. Jesús Kristur stendur mér við hlið.
"Sælir," segi ég. "Má bjóða þér sæti?"
Kristur brosir að mér og tyllir sér. Ég reyni að hagræða mér aðeins svo ég sjái hann betur, en það er svo erfitt að ég hætti við. Ég næ þó að snúa höfðinu að honum, og brosi.
"Gullfallegur dagur í dag," segir Kristur. "Er það kannski þér að þakka?" segi ég glettinn. "Tjaah, ég veit nú ekki með það…" segir hann og roðnar.
Það kemur smá vandræðaleg þögn, Spurning brennur mér á vörum. Smeykur, en samt ákveðinn spyr ég hinn krossfesta.
"Er ég að spyrja rangan mann ef ég spyr þig hver tilgangur lífsins sé?"
"Þú spyrð réttan mann, en rangrar spurningar." segir K.
Ég hinkra aðeins og leita að réttu orðunum.
"Af hverju er ég hér?"
Kristur dregur andann djúpt.
"Tilgangur minn á þessari jörðu, samkvæmt almenningsáliti, var það að ég átti að vísa fólki veginn."
"Og…er það ekki svo?"
"Smá mistúlkun. Ég átti bara að bera boðskap."
"Nei nú lýguru."
"Ég á ekki að vísa fólki veginn. Sá máttur liggur hjá fólkinu. Fólkið á að vísa veginn, Sinn veg, þinn veg, alla vegi."
Þetta voru heldur djúpar pælingar hjá hinum smurða, og gaf ég mér smá stund til að túlka þau.
"Ok…og…hvað gerði ég þá rangt? Af hverju er ég hér?"
"Þú vísaðir ekki veginn."
"Andskotinn…hvað get ég gert til að laga þetta?"
"Þetta geturu ekki lagað bróðir, og það veistu vel."
Ég finn núna hversu vonlaus málstaður minn er gegn hinum upprisna.
"Er eitthvað sem ég get gert?"
Kristur stendur rólega upp og dustar rykið af kuflinum. Hann klappar mér á öxlina.
"Þú getur bara reynt betur í næsta lífi."
Hann lítur brosandi í kringum sig og skýlir augum sínum frá sólinni. Hann blikkar mig og hverfur á braut. Í fjarska heyrist sírenuvæl.
Á Miklubrautinni eru 2 bílar klesstir saman. Þar loga engin ljós.
Og líka ljóðið sem ég gerði:
Veggir, blár stóll.
Kalt loft frá viftunni í loftinu.
Borð, blýantur.
Hver dagur er eins og
súrt epli sem gefur ekkert eftir.
En að lokum kemur tertan
sem lengi beið eftir þér
og hrífur þig með sér
inn í dúnmjúk ský æðruleysis.

sunnudagur, 13. október 2013
Leðurblökulandið
Bat Country - Avenged Sevenfold
"He who makes a beast out of himself, gets rid of the pain of being a man"
Caught here in a fiery blaze, won't lose my will to stay.
I tried to drive all through the night,
The heat stroke ridden weather, the barren empty sights.
No oasis here to see, the sand is singing deathless words to me.
Can't you help me as I'm startin' to burn (all alone).
Too many doses and I'm starting to get an attraction.
My confidence is leaving me on my own (all alone).
No one can save me and you know I don't want the attention.
As I adjust to my new sights the rarely tired lights will take me to new heights.
My hand is on the trigger I'm ready to ignite.
Tomorrow might not make it but everything's all right.
Mental fiction follows me; show me what it's like to be set free.

So sorry you're not here I've been chained too long my vision's so unclear.
Now take a trip with me but don't be surprised when things aren't what they seem.

These eyes won't see the same, after I flip today.
Sometimes I don't know why we'd rather live than die,
We look up towards the sky for answers to our lives.
We may get some solutions but most just pass us by,
Don't want your absolution cause I can't make it right.
I'll make a beast out of myself, gets rid of all the pain of being a man.

So sorry you're not here I've been sane too long my vision's so unclear.

I've known it from the start all these good ideas will tear your brain apart.
Scared but you can follow me I'm too weird to live but much too rare to die.
,, He who makes a beast out of himself, gets rid of the pain of being a man."
Hérna er vísað í Dr. Samuel Johnson sem fór með þessi fleygu orð fyrir um 250 árum. Hérna er greinilega um að ræða ofurmennisdýrkun þar sem einstaklingur á að hafa sig upp fyrir samfélagið, losa sig við allan sársauka mannkynsins og verða meira en bara einstaklingur.
En hvernig? Jú, með því að ölva sig!
Í laginu er mikið um það að ekkert skipti máli nema núið. Hversdagsleikinn er leiðinlegur og alltof raunverulegur, ekkert varið í hann. Maður á að njóta lífsins á meðan maður getur því það er ekkert allt of langt. Það er frekar mikið um eiturlyfja- og áfengistilvísanir í laginu og mjög vel lýst því hvernig maður sér hlutina þegar maður er undir áhrifum. Að fara í leðurblökulandið er samheiti þess að neyta eiturefna. Eiturefnin veita líka neytendanum það sem hann leitar eftir, frelsið:
,,Tomorrow might not make it but everything's all right.
Mental fiction follows me; show me what it's like to be set free."
Til dæmis er í þessu erindi talað um að við höfum ekki allar lausnirnar í lífinu og þá þýðir ekkert að pæla í því:
,,Sometimes I don't know why we'd rather live than die,

I'll make a beast out of myself, gets rid of all the pain of being a man."
Persónulega dýrka ég lika síðustu línurnar í laginu: ,,I've known it from the start all these good ideas will tear your brain apart. Scared but you can follow me, I'm too weird to live but much too rare to die."

Í síðastu línunni er greint frá því að til að losna við öll vandamál, þurfi maður bara að ölva sig.
Komdu
Komdu, eftir Davíð Stefánsson, er týpískt nýrómantískt ljóð þar sem ástin er mjög ýkt og yfirdrifin. Ljóðið er ort útfrá sjónarhorni kvenmanns sem hefur greinilega verið svikin af sínum heitelskaða, samanber upphaf ljóðsins: ,,Heitrofi, heitrofi, hrópa ég á þig." Þarna hefur karlinn greinilega rofið einhvern eið og konan er brjáluð.
Svo brjáluð að hún er tilbúin til að gera hvað sem er til að fá hann aftur. Endurtekningin í orðinu: ,,Komdu", leggur áherlsu á örvæntinguna hjá ljóðmælanda. ,,Komdu, ég skal kyssa í þig karlmennsku og þor, hreystina og fegurðina og frelsisins vor. [...] Komdu, ég skal glaðvekja guðseðlið þitt og fáþér að leikfangi fjöreggið mitt." Þetta sýnir vel þann tregafulla söknuð sem ljóðmælandi býr yfir.
Lítið er um myndmál í ljóðinu, þetta er allt bara frekar blátt áfram.
Boðskapur? Tja, kannski að gera alltaf það sem hjartanu er næst, hlusta á insæið þegar það kemur að svona hlutum, ég veit ekki.
Sumir hlutar ljóðsins eru kannski of mikið eins og: ,, ...fá þér að leikfangi fjöreggið mitt." og ,,Ég skal þerra líkama þinn með líninu því, er ég dansaði saklaust og sælust í."
Soldið mikið, Dabbi. Soldið mikið.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)